Styttri útgáfa:


Öruggt húsnæði fyrir fólk – ekki fjárfesta
  • Húsnæði fyrir fólk, ekki fjárfesta
  • Gæðahúsnæði fyrir fólk óháð efnahag 
  • Komum í veg fyrir brask á húsnæðismarkaði með þrengri skilyrðum 
  • Frekari skorður á skammtímaleigu, meðal annars AirBnB
  • Leigubremsu strax
  • Byggjum fleiri leiguíbúðir í samstarfi við hið opinbera 
  • Sérstakar vaxtabætur til að mæta aukinni vaxtabyrði heimila
  • Séreignasparnaður áfram nýttur í íbúðakaup fyrir fyrstu kaupendur

Heilbrigðiskerfið er hornsteinn velferðarsamfélagsins
  • Stöndum vörð um opinbera heilbrigðiskerfið með öllum ráðum
  • Höfnum frekari einkavæðingu
  • Stöndum með sterkum Landspítala
  • Berjumst gegn sölu áfengis í smásölu og höfnum einkavæðingu ÁTVR
  • Eflum forvarnir gegn ofbeldi meðal barna og ungmenna.
  • Aðgengi að lyfjum í heimabyggð
  • Heilsugæsla efld um land allt
  • Hagrænir hvatar fyrir lækna út á landi
  • Auðveldum læknum og heilbrigðisstarfsfólki að flytja heim með niðurfellingu námslána
  • Aukum aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu

Menntun er mikilvægasta jöfnunartækið 
  • Enga stéttaskiptingu í skólakerfinu 
  • Tryggjum með lögum og fjárframlögum að öll börn komist í leikskóla að loknu fæðingarorlofi 
  • Jafnrétti til náms – gjaldfrjálsa skóla á öllum stigum
  • Metum kennara að verðleikum og aukum stuðning á öllum sviðum
  • Eflum grunnrannsóknir og aukum framlög til háskóla 
  • Lækkum vexti á námslánum og nýtum námslánakerfið til að laða stúdenta heim til Íslands
  • Menning og listir eiga að vera aðgengilegar öllum hópum samfélagsins og afnema þarf hindranir sem eru til staðar svo fólk geti notið margs konar menningar.


Skilum tíma til fjölskyldna
  • Börn eiga að lifa við frelsi frá fátækt, ofbeldi, rasisma, stéttaskiptingu og kvenfyrirlitningu
  • Brúum bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla strax
  • Hækkum barnabætur og fæðingarstyrk
  • Afnemum skerðingar á lægstu greiðslum í fæðingarorlofi 
  • Útrýmum biðlistum í þjónustu við öll börn
  • Umbyltum meðferðarúrræðum fyrir börn með fjölþættan vanda

Við erum með náttúruna að láni
  • Bönnum hvalveiðar
  • Bönnum blóðmerahald
  • Friðum Eyjafjörð, Öxarfjörð og Seyðisfjörð fyrir sjókvíaeldi
  • Fjölga friðuðum svæðum og fasa út eldi í opnum sjókvíum
  • Þriðjungur Íslands á láði og legi friðaður fyrir 2030
  • Friðum miðhálendið og hálendi Vestfjarða
  • Verndum vistkerfin með sjálfbærri nýtingu auðlinda
  • Höfnum einkavæðingu á auðlindum og innviðum
  • Auðlindaákvæði í stjórnarskrá
  • Tryggjum réttarstöðu náttúru- og dýraverndunarsamtaka
  • Stöðvum rafmyntagröft á Íslandi og nýtum orkuna í annað
  • Vindmyllur rísi bara á þegar röskuðum svæðum og verði í opinberri eigu

Bændur eru vörslumenn landsins
  • Nýtt stuðningskerfi þarf að virka fyrir bændur 
  • Auka þarf stuðning við innlendan landbúnað
  • Veitum afslátt á rafmagni til grænmetisbænda
  • Styrkjum möguleika bænda til að byggja afkomu sína á náttúruvernd og endurheimt landgæða
  • Höldum áfram stórátaki í íslenskri kornrækt
  • eflum alla innlenda matvælaframleiðslu

Borgin er ekkert án byggðanna
  • Bætum samgöngur um allt land og aukum framlög til vegagerðar
  • Fjármögnun jarðgangnaáætlun
  • Skólabílar á bundið slitlag og útrýmum einbreiðum brúm á hringvegi
  • Tryggjum orkuöryggi og eflum dreifikerfi landsins í sátt við samfélag og náttúru
  • Verndum heimilin fyrir óhóflegum hækkunum á raforkuverði
  • Setjum lög um almenningssamgöngur
  • Flýtum Borgarlínunni 

Róttækar en raunhæfar aðgerðir í loftslagsmálum
  • Þau borga sem menga – mengunarbótareglan skal ná til allra
  • Festum í lög markmið Íslands um 55% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir 2030
  • Grænþvottur gerður refsiverður í lögum 
  • Setjum heildræna loftslagsstefnu
  • Stóraukum fjárveitingar til loftslagsaðgerða og flýtum þeim
  • Notkun jarðefnaeldsneytis skal hætt fyrir 2040 með orkuskiptum

Kvenfrelsi í augsýn
  • Ofbeldi gegn konum er lýðheilsuógn og brýnt að uppræta með öllum tiltækum ráðum
  • Útrýmum kynjamisrétti og kvenfyrirlitningu
  • Berjumst gegn skerðingu á réttindum kvenna og transfólks
  • Aukum virði kvennastarfa og útrýmum launamuni kynjanna
  • Tryggjum jafna skiptingu fæðingarorlofs
  • Brotaþolar í kynferðisbrotamálum eiga að fá réttarstöðu sem aðilar máls
  • Ríkið gert skaðabótaskylt gagnvart þolendum ef gerð eru mistök í rannsókn eða hún tefst óeðlilega. 
  • Auðveldum þolendum heimilisofbeldis að fá nálgunarbann og beitum sektum fyrir brot á þeim
  • Stafræn kynferðisbrot gerð refsiverð með lögum
  • Tryggjum mannúðlega leið út úr vændi og mansali

Fjölbreytni bætir öll samfélög
  • Tökum vel á móti innflytjendum og tryggjum þeim möguleika á að blómstra sem fullgildir þátttakendur í samfélaginu
  • Engar varðhaldsbúðir fyrir fólk á flótta
  • Eina leiðin í málefnum innflytjenda er upplýsing og samtal
  • Veitum jaðarsettum hópum sérstaka athygli og umhyggju
  • Tryggjum ókeypis íslenskukennslu fyrir innflytjendur

Stríðum lýkur með friði, ekki orustum
  • Fordæmum allt stríð og ofbeldi
  • Upprætum ómannúðlega stefnu gegn fólki á flótta
  • Flýtum afgreiðslu umsókna og aukum fagmennsku
  • Verklag og vinnubrögð Útlendingastofnunar skal endurskoðað frá grunni
  • Vinnum gegn öllum vopnaburði í íslensku samfélagi
  • Tryggjum starfsöryggi lögreglunnar 
  • Aukum sýnilega löggæslu og traust almennings til lögreglu með markvissum aðgerðum
  • Krefjumst vopnahlés í frjálsri Palestínu strax
  • Ísraelsk stjórnvöld skulu dregin til ábyrgðar fyrir stríðsglæpi og þjóðarmorð á Gaza
  • Vopnaflutningar til Ísrael skulu stöðvaðir og alþjóðlegar viðskiptaþvinganir settar á